Fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands

17.01.2012

H.F. Verðbréf og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér samkomulag um að H.F. Verðbréf hf. verði milligönguaðili í fjárfestingaleið Seðlabanka Íslands.

Samkomulagið felur í sér að H.F. Verðbréf tekur að sér að veita fjárfestum ráðgjöf við gerð umsókna um þátttöku í útboði eða umsókn um heimild til flutnings á krónum að vissum skilyrðum uppfylltum.


Þetta þýðir m.a. að H.F. Verðbréf munu:

  • veita fjárfestum ráðgjöf við gerð umsókna um þátttöku í útboði.
  • veita fjárfestum ráðgjöf við gerð umsókna um heimild til flutnings á krónum.
  • leggja fram umsóknir í nafni fjárfestis.
  • sjá um samskipti við Seðlabankann fyrir hönd fjárfestis.
  • annast uppgjör að loknum viðskiptum.
  • sjá um annað sem leiðir af fyrirkomulagi viðskiptanna.

Hér er tilkynning Seðlabankans um málið.

Frekari upplýsingar veita Markaðsviðskipti H.F. Verðbréfa í síma 585 1700.

H.F. Verðbréf hf.    |    kt. 581203-2760    |    Skólavörðustíg 11    |    101 Reykjavík    |    Sími 585 1700    |   Fax 585 1701   |   info@hfv.is