H.F. Verðbréf sigraði

Lið H.F. Verðbréfa sigraði á fótboltamóti fjármálafyrirtækja, sem haldið var af Íslenskum Verðbréfum á Akureyri laugardaginn 28. janúar. Liðið vann alla sína leiki að einum undanskildum.  > meira

Fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands

H.F. Verðbréf og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér samkomulag um að H.F. Verðbréf hf. verði milligönguaðili í fjárfestingaleið Seðlabanka Íslands.   > meira

Fjármögnun hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ

Mosfellsbær og H.F. Verðbréf hafa gengið frá samningi um fjármögnun hjúkrunarheimilisins sem hafin er bygging á við Hlaðhamra. Samningurinn gerir ráð fyrir skuldabréfaútgáfu til 40 ára að upphæð 800 milljónir króna með 4,08% ávöxtunarkröfu.  > meira

Sparisjóður Norðfjarðar – söluferli

Fyrirtækjaráðgjöf H.F. verðbréfa hefur til sölumeðferðar, fyrir hönd stjórnar í umboði stofnfjáreiganda, allt stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar. Ákvörðun um að auglýsa skyldi allt stofnfé sjóðsins í opnu söluferli var tekin á stofnfjárhafafundi þann 18. ágúst síðastliðinn.  > meira

Sparisjóður Svarfdæla – söluferli

Fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa hf. hefur til sölumeðferðar, fyrir hönd Bankasýslu ríkisins, 90% stofnfjárhlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla.  > meira

Stjórnendur Toyota á Íslandi kaupa félagið

Stjórnendur Toyota á Íslandi, hafa keypt 60% hlut í félaginu af Landsbankanum. Fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa var ráðgjafi í verkefninu.  > meira

Eyrir Invest greiðir upp og gefur út ný skuldabréf

Í dag greiðir Eyrir Invest upp skuldabréfaflokk, EYRI 07 2, og hefur útgáfu nýs skuldabréfaflokks, EYRI 05 1. Markmiðið er að gefa út fyrir allt að 4 m.a króna. H.F. Verðbréf höfðu umsjón með verkefninu.  > meira

Aðgerðaáætlun vegna fjárhagsvanda Orkuveitu Reykjavíkur

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og sveitarfélögin sem eiga fyrirtækið hafa samþykkt umfangsmikla aðgerðaáætlun til að skjóta tryggari stoðum undir rekstur og starfsemi fyrirtækisins til loka ársins 2016 við þær erfiðu aðstæður sem nú eru á lánamörkuðum.  > meira

Uppkaup á skuldabréfum Clearwater Finance Inc.

H.F. Verðbréf hafa nú lokið umsjón með uppkaupum á tveimur skuldabréfaflokkum gefnum út af Clearwater Finance fyrir samtals 4,2 ma. kr.  > meira

Fjárhagsleg endurskipulagning Ölgerðarinnar

Fjárhagslegri endurskipulagningu Ölgerðarinnar er lokið með skuldauppgjöri við Arion banka og innkomu Arion banka og Auðar I sem hluthafa. H.F. Verðbréf veitti ráðgjöf við skuldbreytingu erlendra lána og fjárhagslega endurskipulagningu.  > meira

H.F. Verðbréf hf.    |    kt. 581203-2760    |    Skólavörðustíg 11    |    101 Reykjavík    |    Sími 585 1700    |   Fax 585 1701   |   info@hfv.is