Upplýsingar

H.F. Verðbréf hf.
Kt. 581203-2760
Skólavörðustíg 11
101 Reykjavík

Bankaupplýsingar:
1150-26-1767
BIC: VERRISR1


Stöðluð uppgjörsfyrirmæli Uppgjörsreikningur H.F. Verðbréfa hjá Arion:
0329-26-2050
kt. 470502-4520

Verklagsreglur um bestu framkvæmd Stefna gegn hagsmunaárekstrum Upplýsingablað um áhættu

Lagalegur fyrirvari

Upplýsingar á þessari heimasíðu www.hfverdbref.is eru unnar af starfsfólki H.F. Verðbréfa. Upplýsingarnar eru eingöngu veittar í upplýsingaskyni og skulu því ekki nýttar á þeirri forsendu að um sé að ræða ráðleggingar vegna fjárfestinga í fjármálagerningum. Fjárfestar eru eindregið hvattir til að afla sér sjálfstæðra ráðlegginga eigin ráðgjafa áður en fjárfest er í fjármálagerningum, s.s. vegna lagalegrar eða skattalegrar stöðu sinnar. Sérstök athygli er vakin á því að H.F. Verðbréf þjónustar aðeins fagfjárfesta og viðurkennda gagnaðila en ekki almenna fjárfesta og tekur upplýsingagjöf og þjónusta fyrirtækisins mið af því.

Skoðanir eða túlkanir sem fram koma á heimasíðunni eru byggðar á opinberum upplýsingum sem aflað er á þeim tíma sem þær eru skrifaðar og gætu því breyst án fyrirvara. H.F. Verðbréf byggir á upplýsingum frá upplýsingaveitum sem félagið telur áreiðanlegar. H.F. Verðbréf ábyrgist þó ekki áreiðanleika eða nákvæmni upplýsinganna og ber enga ábyrgð á áreiðanleika upplýsingaveitna sem stuðst er við. Sérstök athygli er vakin á því að áætlanir og spár geta breyst fyrirvaralaust á jákvæðan eða neikvæðan hátt og eru háðar utanaðkomandi óvissu og breytum sem gjarnan eru ekki á valdi H.F. Verðbréfa. H.F. Verðbréf ábyrgist ekki að gera breytingar á þeim upplýsingum sem birtar eru á heimasíðunni ef forsendur þeirra breytast eða ef í ljós kemur að þær eru rangar eða ónákvæmar.

Hvorki H.F. Verðbréf né stjórnendur eða starfsmenn félagsins bera ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem hlýst af upplýsingum sem rekja má til heimasíðu þessarar eða dreifingu slíkra upplýsinga. Rísi ágreiningur út af upplýsingum sem rekja má til heimasíðu þessarar, skal slíkur ágreiningur leystur samkvæmt íslenskum lögum fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.

H.F. Verðbréf á allan höfundarrétt að upplýsingum á heimasíðunni. Óheimilt er með öllu að dreifa þeim upplýsingum sem finna má heimasíðunni eða nýta þær með öðrum hætti án heimildar H.F. Verðbréfa.

Athygli er vakin á því að símtöl til og frá H.F. Verðbréfum eru tekin upp samkvæmt heimild í ákvæði 48. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti. Eingöngu verður hlustað á afrit símtala ef nauðsyn ber til og fer H.F. Verðbréf með upplýsingarnar í samræmi við aðrar upplýsingar er lúta þagnarskyldu samkvæmt ákvæðum 58. og 60. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Tilgangur upptöku símtala er að tryggja öryggi viðskiptavina og H.F. Verðbréfa og leiðrétta hugsanlegan misskilning.