Verklagsreglur um bestu framkvæmd viðskiptafyrirmæla

I.   TILGANGUR OG GILDISSVIÐ

1 gr. Tilgangur og gildissvið reglna um bestu framkvæmd

Fjármálafyrirtækjum ber almennt, við framkvæmd viðskiptafyrirmæla, að leita allra leiða til þess að tryggja bestu mögulegu niðurstöðu fyrir viðskiptavini sína með tilliti til verðs, kostnaðar, hraða, líkinda til þess að af viðskiptunum verði, umfangs, eðlis og annarra þátta sem máli skipta.  Ef viðskiptavinur mælir fyrir um ákveðna framkvæmd skal fylgja fyrirmælum hans og telst þá fyrirtæki hafa uppfyllt skyldur sínar við að tryggja bestu mögulegu niðurstöðu.

Verklagsreglur þessar eru settar af H.F. Verðbréfum hf. (HFV) til að uppfylla framangreinda skyldu um bestu mögulegu niðurstöðu í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti.  Reglur þessar skulu ekki túlkaðar á þann hátt að í þeim felist loforð eða skuldbinding umfram það sem krafist er samkvæmt lögum og reglugerðum á hverjum tíma.

Reglur þessar gilda um framkvæmd, móttöku og miðlun viðskiptafyrirmæla viðskiptavina varðandi viðskipti með fjármálagerninga.

Reglur þessar gilda ekki um viðskipti þeirra viðskiptavina sem teljast viðurkenndir gagnaðilar, að undanskildu ákvæði um birtingu skilyrtra fyrirmæla í 3. mgr. 2. gr. (sem leiða af 2. mgr. 19. gr. laga um verðbréfaviðskipti), nema samið sé sérstaklega um reglurnar gildi gagnvart slíkum aðila.

Reglur þessar gilda ekki þegar HFV er ekki að framkvæma, móttaka eða miðla viðskiptafyrirmælum fyrir hönd viðskiptavina, t.d. þegar HFV birta eða gefa upp tilboð um kaup eða sölu fjármálagernings og viðskiptavinur á viðskipti á grundvelli þess tilboðs.

II.   ALMENNT UM FRAMKVÆMD VIÐSKIPTAFYRIRMÆLA

2. gr. Meginreglur um framkvæmd

Fyrirmælum viðskiptavina skal framfylgt á sanngjarnan máta og eins skjótt og mögulegt er. Fyrirmæli viðskiptavina sem eru sambærileg að öðru leyti skal framfylgt í tímaröð í samræmi við það hvenær þau voru móttekin, nema slíkt sé ómögulegt vegna eðlis fyrirmælanna, aðstæðna á markaðnum eða ef önnur framkvæmd er talin betri fyrir viðskiptavin.

Fyrirmæli sem framkvæmd eru fyrir viðskiptavini skulu tafarlaust skráð og beint í réttan farveg.  Komi upp raunveruleg vandkvæði við að framkvæma fyrirmæli án tafar skal tilkynna almennum fjárfesti um slíkt þegar slík vandkvæði koma í ljós.

Þegar um skilyrt fyrirmæli er að ræða, sem ekki eru framkvæmd jafnskjótt og þau berast vegna markaðsaðstæðna, skal HFV, nema viðskiptavinur mæli fyrir um annað, stuðla að því að fyrirmælin verði framkvæmd eins fljótt og mögulegt er með því að birta þau samstundis á aðgengilegan hátt.  Þessari skyldu er fullnægt með miðlun fyrirmælanna til skipulags verðbréfamarkaðar eða markaðstorgs fjármálagerninga (MTF).  Hægt er að leita eftir undanþágu frá birtingu til Fjármálaeftirlitsins.  Með undirritun skilmála HFV varðandi markaðsviðskipti telst viðskiptavinur hafa samþykkt að HFV meti hvort og hvenær birta eigi slíkar pantanir.

Við framkvæmd viðskiptafyrirmæla mun HFV velja þann viðskiptastað sem fellur best að þeim þáttum sem máli skipta við að ná bestu mögulegu niðurstöðu.  Mæli viðskiptavinur fyrir um ákveðna framkvæmd mun HFV fylgja fyrirmælum hans.

Mæli viðskiptavinur ekki fyrir um ákveðna framkvæmd mun HFV framkvæma viðskiptafyrirmæli með eftirfarandi hætti eða samtvinnun á eftirfarandi háttum:

  • Utan skipulags verðbréfamarkaðar eða MTF með viðskiptum við þriðja aðila.
  • Á skipulegum verðbréfamarkaði eða MTF eða, í þeim tilvikum sem HFV er ekki aðili að viðkomandi markaði eða MTF, með þátttöku þriðja aðila sem HFV hefur gert samning við um að framkvæma viðskiptafyrirmæli fyrir sína hönd á viðkomandi markaði eða MTF.

3. gr. Samsafn og úthlutun fyrirmæla

HFV sinnir einungis fyrirmælum viðskiptavinar með fyrirmælum annars viðskiptavinar þegar eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

  • Ólíklegt verður að teljast að samsafn fyrirmæla og viðskipta muni í heild reynast óhagstæð einhverjum viðskiptavina.
  • Samsöfnun hefur ekki óhagstæð áhrif á tiltekin fyrirmæli viðskiptavinar, og
  • Framkvæmdin sé í samræmi við stefnu félagsins um úthlutun fyrirmæla og dreifingu þeirra.

III.   BESTA FRAMKVÆMD VIÐSKIPTAFYRIRMÆLA

4. gr.   Almennt um bestu framkvæmd viðskiptafyrirmæla

Með bestu framkvæmd viðskiptafyrirmæla í reglum þessum er átt við þá skyldu sem hvílir á fjármálafyrirtæki, sbr. 1. grein,  um að tryggja bestu mögulega niðurstöðu fyrir viðskiptavini sína.

Við mat á bestu framkvæmd er ekki endilega horft til einstakra viðskipta heldur fremur lagt mat á skráð viðskipti á ákveðnu tímabili sem gefa til kynna að á heildina litið náist fram besta framkvæmd með því að framkvæma fyrirmæli viðskiptavina á einhverjum þeim viðskiptastað í samræmi við fyrirmæli þessara verklagsreglna.

Þrátt fyrir að leitað verði allra eðlilegra leiða til þess að ná sem bestri niðurstöðu fyrir viðskiptavini miðað við þau úrræði sem til staðar eru og þær aðstæður við starfað er við, þá er ekki hægt að tryggja að í hverju tilviki verði alltaf um að ræða bestu niðurstöðu. Fari starfsmenn HFV eftir reglum þessum í einu og öllu verður almennt talið að HFV hafi fullnægt skyldu sinni um að gera eðlilegar ráðstafanir til tryggja viðskiptavinum sínum sem hagstæðustu niðurstöðu.

5. gr. Þættir sem litið er til og vægi þeirra

Við framkvæmd viðskiptafyrirmæla mun HFV leita allra eðlilegra leiða til að ná bestu mögulegu niðurstöðu fyrir viðskiptavini sína með tilliti til ákveðinna þátta sem eru:

  • Verð,
  • Kostnaður,
  • Hraði,
  • Líkur á að af viðskiptunum verði,
  • Umfang,
  • Eðli,
  • Aðrir þættir sem máli skipta.

Að öllu jöfnu má ætla að verð og kostnaður hafi mest vægi þegar leitað er bestu mögulegu niðurstöðu, einkum þegar um almenna fjárfesta er að ræða.  Þrátt fyrir framangreint þá kunna aðstæður að leiða til þess að aðrir þættir vegi þyngra með hliðsjón af því hvaða viðskiptavinur á í hlut, hvernig fyrirmælum er háttað, um hvaða fjármálagerninga er að ræða eða á hvaða markaði viðskiptin fara fram.

HFV mun ákvarða hlutfallslegt vægi einstakra þátta í framkvæmd viðskiptafyrirmæla í hverjum viðskiptum fyrir sig á grundvelli reynslu og þekkingu starfsmanna, fyrirliggjandi upplýsinga og eftirfarandi atriðum:

  • Einkenni viðskiptavinar, þ.m.t. hvort viðskiptavinur er flokkaður sem almennur fjárfestir eða fagfjárfestir.
  • Einkenni fyrirmæla viðskiptavinar.
  • Einkenni þeirra fjármálagerninga sem um ræðir í viðkomandi fyrirmælum.
  • Einkenni þeirra viðskiptastaða sem unnt er að beina fyrirmælum til.

Ákvæði 1.-3. mgr. greinar þessarar eiga ekki við þegar viðskiptavinur mælir fyrir um ákveðna framkvæmd viðskiptafyrirmæla. Í slíkum tilvikum verða fyrirmælin framkvæmd án tillits til þeirra þátta sem áður er lýst. Nánar er kveðið á um reglur varðandi slík fyrirmæli í 6 grein. 

  6. gr.   Viðskiptavinur mælir fyrir um ákveðna framkvæmd

Þegar viðskiptavinur mælir fyrir um ákveðna framkvæmd viðskiptafyrirmæla munu viðskiptin framkvæmd í samræmi við slík fyrirmæli. Viðskiptafyrirmæli sem gefin eru með beinum markaðsaðgangi að Nasdaq OMX á Íslandi í gegnum kerfið “The Online Trader” samkvæmt samningi HFV og viðskiptavinar þar um teljast ávallt til fyrirmæla um ákveðna framkvæmd viðskipta.

Viðskiptavinur gerir sér grein fyrir því að þegar hann mælir fyrir um ákveðna framkvæmd getur HFV ekki og mun ekki gæta að öllum þeim þáttum sem taldir eru í verklagsreglum þessum til að ná bestu mögulegu niðurstöðu.

Nái ákveðin fyrirmæli ekki til takmarkaðs þáttar af framkvæmdinni mun HFV framkvæma aðra þætti þeirra á grundvelli þessarar stefnu.

IV.   VIÐSKIPTASTAÐIR OG TRUFLUN VIÐSKIPTA

7. gr.   Framkvæmd viðskiptafyrirmæla á markaði

Það er meginregla að HFV framkvæmir viðskiptafyrirmæli viðskiptavina á skipulegum verðbréfamörkuðum eða markaðstorgum fyrir fjármálagerninga (MTF), (sameiginlega vísað til sem markaða í reglum þessum). 

Þegar reglur þessar eru settar eiga HFV einungis aðild að Nasdaq OMX á Íslandi (Kauphöll Íslands) og First North markaðstorginu að því er varðar viðskipti með bæði hlutabréf og skuldabréf og framkvæma því að meginreglu til viðskiptafyrirmæli á þessum mörkuðum. Við val um markaði mun HFV velja þann viðskiptastað sem félagið álítur að best eigi við.

HFV velur framangreinda leið að meginreglu þar sem á markaði er verðlagning fjármálagerninga gagnsæ, hraðinn við afgreiðslu viðskipta mikill, auðvelt að átta sig á kostnaði við að afla viðskiptanna, og líkurnar á því að samningar náist meiri en utan markaða.

Undir venjulegum kringumstæðum mun HFV meðhöndla pantanir með eftirfarandi hætti:

  • Senda pöntunina þegar í stað til skipulegs verðbréfamarkaðar eða markaðstorgs fjármálagerninga.
  • Framkvæma pöntunina með nokkrum mismunandi viðskiptum á markaði.
  • Nýta pöntun eins viðskiptavinar til að mæta pöntun annars viðskiptavinar á verði sem svarar til markaðsverðs.

8. gr.   Framkvæmd viðskiptafyrirmæla utan markaða

Þrátt fyrir þá meginreglu sem sett er fram í 7. grein kann HFV að meta aðstæður svo að betri niðurstaða fáist við framkvæmd viðskiptafyrirmæla utan markaða.

Slíkar aðstæður eiga fyrst og fremst við þegar um er að ræða stór viðskipti. Með stórum viðskiptum er átt við viðskipti sem eru stærri en almennt gengur og gerist með viðskipti með viðkomandi verðbréf.

Samkvæmt 3. mgr. 18. gr. laga um verðbréfaviðskipti hvílir sú skylda á HFV að upplýsa viðskiptavini sérstaklega og afla samþykkis þeirra fyrir því að eiga viðskipti utan markaða með fjármálagerninga sem skráðir eru á markaði. Með undirritun undir skilmála varðandi markaðsviðskipti HFV samþykkir viðskiptavinur að HFV framkvæmi viðskiptafyrirmæli almennt í samræmi við verklagsreglur þessar utan markaða.

9. gr. Framkvæmd viðskiptafyrirmæla á öðrum mörkuðum

Fái HFV viðskiptafyrirmæli um fjármálagerninga, sem viðskipti eiga sér stað með á skipulegum verðbréfamarkaði eða MTF sem HFV er ekki aðili að (þ.m.t. mörkuðum utan EES), mun HFV framkvæma slík fyrirmæli með því að miðla þeim, á grundvelli samnings þar að lútandi, til milliliða sem eru aðilar að eða hafa aðgang að viðkomandi mörkuðum. Val HFV á slíkum milliliðum byggir á mati á getu þeirra til að framkvæma fyrirmælin vel og á grundvelli þeirra þátta sem máli skipta.

10. gr. Truflun á markaði eða í kerfi fyrir beinan markaðsaðgang „The Online trader“

Verði  truflun á markaði eða í kerfinu fyrir beinan markaðsaðgang „The Online Trader“, getur verið ómögulegt eða óviðeigandi að framkvæma viðskiptafyrirmæli í samræmi við þá verkferla sem lýst er í reglum þessum. HFV mun í slíkum tilvikum, eftir bestu getu, leita allra eðlilegra leiða til að ná bestu mögulegu niðurstöðu fyrir viðskiptavini sína.

V.   UPPLÝSINGAGJÖF

11. gr. Upplýsingagjöf

HFV birtir verklagsreglur þessar á heimasíðu sinni og vísar til þeirra í samningsskilmálum félagsins. 

Komi til efnislegra breytinga á reglum þessum mun HFV upplýsa viðskiptavini sína um það. Með því að birta nýjar eða breyttar verklagsreglur á heimasíðu sinni telst HFV hafa uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt þessari grein.

Veiti HFV almennum fjárfestum þjónustu skal, áður en þjónustan er veitt, gæta að upplýsingagjöf skv. 3. mgr. 46. gr. reglugerðar nr. 995/2007.

HFV skal að beiðni viðskiptavinar geta sýnt fram á að fyrirmæli hans hafi verið framkvæmd í samræmi við verklagsreglur þessar varðandi bestu framkvæmd viðskiptafyrirmæla.

VI.   EFTIRLIT, ENDURSKOÐUN, GILDISTAKA

12. gr.   Eftirlit með framkvæmd verklagsreglnanna

Regluvörður annast eftirlit með að verklagsreglur þessar séu í samræmi við lög og almennt með framkvæmd þeirra.  Jafnframt skal regluvörður hafa eftirlit með því að verklagsreglurnar séu endurskoðaðar árlega og samráð skal haft við hann um fyrirhugaðar breytingar á þeim.

Regluvörður skal hafa eftirlit með skilvirkni verklagsreglna þessara og að fyrirmæli séu framkvæmd í samræmi við þær.  Jafnframt skal regluvörður gæta þess að viðskiptavinir séu upplýstir um stefnuna þegar þeir samþykkja að ganga til viðskipta.

Verði regluvörður þess var að viðskipti hafi átt sér stað í andstöðu við verklagsreglur þessar skal hann gera framkvæmastjóra viðvart og setja fram tillögur um viðeigandi viðbrögð.  Jafnframt getur regluvörður, telji hann ástæðu til, gert skriflega athugasemd við starfshætti starfsmanna og skal afrit sent framkvæmdastjóra.

Regluvörður skal fjalla um framkvæmd reglna þessara í árlegri skýrslu sinni til stjórnar félagsins.

13. gr.   Endurskoðun reglnanna

Reglur þessar skulu endurskoðaðar árlega.  Á sama tíma skal endurskoðað fyrirkomulag HFV við framkvæmd fyrirmæla.  Jafnframt skal við sama tækifæri meta hvort að markaðir skv. reglunum leiði til hagstæðustu niðurstöðu fyrir viðskiptavini.

Slík endurskoðun skal einnig fara fram ef veruleg breyting verður á getu félagsins til að ná besta hugsanlega árangri fyrir viðskiptavini, eins og nánar er fjallað um í opinberum reglum.

14.   Gildistaka

Reglur þessar gilda frá og með 5. maí 2012.  Jafnframt falla úr gildi eldri verklagsreglur HFV um bestu framkvæmd viðskiptafyrirmæla.

 

Þannig samþykkt á fundi stjórnar H.F. Verðbréfa þann 5. maí 2012

 

Halldór Friðrik Þorsteinsson                 Gunnar H. Sverrisson

 

Kári Kárason

H.F. Verðbréf hf.    |    kt. 581203-2760    |    Skólavörðustíg 11    |    101 Reykjavík    |    Sími 585 1700    |   Fax 585 1701   |   info@hfv.is