H.F. Verðbréf hf. var sett á stofn af Halldóri Friðriki Þorsteinssyni í lok árs 2003 og fékk starfsleyfi til verðbréfamiðlunar í febrúar 2004. Bakvinnslu var útvistað til Arion verðbréfavörslu og samstarf var við Sparisjóðinn í Keflavík um Kauphallarviðskipti. Fyrst um sinn var stofnandinn eini starfsmaðurinn og miðlaði hlutabréfum í utanþingsviðskiptum, en síðar bættust við stofnfjárbréf sparisjóðanna sem viðskipti hófust með haustið 2004.
Fyrirtækið réð til sín þrjá starfsmenn sumarið 2006, fékk aðild að Kauphöll Íslands um haustið og hóf miðlun á skuldabréfum. Í lok þess sama árs varð fyrirtækið síðan fyrst íslenskra fjármálafyrirtækja til þess að bjóða upp á beinan markaðsaðgang að Kauphöllinni, en með tilkomu þeirrar miðlunartækni lækkuðu þóknanir í verðbréfaviðskiptum til mikilla muna og urðu sambærilegar við nágrannalöndin.
Í mars 2008 fékk fyrirtækið starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki og þá bættist fyrirtækjaráðgjöf við starfsheimildir þess. Í árslok 2010 lét Halldór Friðrik af störfum sem framkvæmdastjóri og tók sæti í stjórn fyrirtækisins og við tók Andri Guðmundsson sem hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2005.
